Bloggsvæði Svansie
My friends....and family :-)
Dagsetning
30. júlí 2010
25.05.2010 07:54:13 / svansie

Nú er ég ein heima í fyrsta sinn

Nú fóru allir út í morgun. Og ég sit hérna ein. hihihihi mér finnst það nú ansi næs. nú er ég gengin tæpar 37 vikur, og þótt ég hafi nú vonað að eiga barnið áður en 40 vikur væru liðnar, þá er ég alveg viss um að þessi mun hanga aðeins framyfir. Allavega finnst mér allt rosalega venjulegt, engir fyrirvaraverkir eða neitt. Sem er sossum allt í lagi, þá verðum við bæði, ég og drengurinn , bara meira líkamlega tilbúin í fæðinguna þegar að því kemur.

Elísa fór með rútu í skógarferð með leikskólanum í dag. Ég stóð og hvaddi litla barnið mitt í rútu með öllum hinum krökkunum og lítinn bakpoka á bakinu...gvuð..hún var svo sæt...hún og Korka héldust í hendur og pössuðu hvora aðra. 

Gabríel fór í fyrstu sundferðina í skólanum í dag. Það verður gaman að heyra hvernig það fór, þar sem hann er ekkert voða sáttur við að fara í skólasund....hehehe...svo mikill þrjóskupúki þessi drengur, alveg eins og pabbi sinn.;)

Annars gengur allt rosa vel og okkur líður mjög vel. Fjandans bögg þó að nýja hjólinu hans Gabba var stolið á föstudaginn, læstu , ásamt hjólinu hans Kristófers vinar hans, af skólalóðinni á meðan drengirnir voru í skólanum. Sjáum til hvað eftirlitsmyndavélarnar sýna í dag og vonum það besta. :)

Undanfarnir dagar hafa verið alveg yndislegir. Ég er loksins komin með einhvern lit í framan, sem ég er ekki einusinni viss um að hafi gerst neitt seinasta sumar á Íslandi...hehehe...en sólin hefur sleikt okkur alveg síðan á afmælinu hennar Moniku á fimmtudaginn. Við sátum útí garði hjá Kalla og Moniku, grilluðum og nutum þess að vera í góðu veðri allan fimmtudaginn. Svo á laugardaginn fórum við á Carnival í Fælledparken, en það er bara risa risa stór hálfgerður skrúðgarður....og það var svona Carnival í gangi, mismunandi tónlist í öllum hornum garðsins, skemmtiatriði og fólk í búningum. Við fórum á stórt opið svæði með Theu og fleiri vinum K&M, með teppi og nesti, og lágum þar og slöppuðum af. Svo löbbuðum við heim til Theu og mannsins hennar Jens, settumst útí garð, grilluðum pylsur, drukkum bjór og höfðum bara gaman. Við fórum loksins heim um 11 um kvöldið, tókum strætó og lest og svo bílinn heim....hehehe....ýkt næs dagur.

Elísa fór í fyrsta sinn í lest, og var búin að vera að biðja um að fara í strætó frá því við fluttum hingað, þannig hún var geðveikt glöð að fá að fara í lestina og lestarstöðina og strætóinn. Þvílíkt stuð og spenna fyrir hana. Gabríel finnst alltaf svo gaman að fara í lestina, og hann fékk að sitja fremst/aftast, þar sem er víst skemmtilegast að sitja.

já, ég er sko alveg að fíla þetta. :D

knús, kossar og saknaðarkveðju;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2010 07:31:06 / svansie

2 vikur í DK liðnar

hæhæ, hvað er að frétta? Af okkur er allavega allt rosa fínt að frétta. Nú eru liðnar rúmar 2 vikur síðan við fluttum til DK. Eftir þvílíkt ferðalag með rútu til Akureyrar og flugi svo til Köben vegna eldgoss á íslandi, komumst við loksins á leiðarenda.

Við erum búin að vera í því að koma okkur fyrir, kaupa húsgögn og fleira. Við erum búin að kaupa svart borðstofu/eldhús borð, svartan malm skenk úr íkea, rautt sófaborð og hjónarúm. Það sem mest liggur á núna að kaupa er rúm handa Gabríel og hjól. 

Gabríel var að byrja fyrsta daginn í skólanum í morgun. Við mættum 10 og hittum kennarann hans, Inger að nafni. Hún er rosa fín og skemmtileg og hún spjallaði við okkur á ensku, og Gabríel skildi það alveg....alger snillingur þessi drengur. 

Hann er búinn að kynnast strák, jafngömlum sem heitir Kristófer, og þeir hafa verið gjörsamlega límdir saman síðan. Og svo var hann settur í sama bekk og þeir sitja saman...hehehehe....alger snilld og þeir alveg himinlifandi.

Elísa Birta byrjar í nýja leikskólanum, Kastanjehuset, á mánudaginn og vá er kominn tími til. Hún er orðin ansi þreytt á því að hanga heima með mömmu sinni og brósa, þó þessi tími hafi verið alveg bráðnauðsynlegur fyrir okkur öll. 

Þetta er nú gott í bili. :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.04.2010 21:59:40 / svansie

Nýjasta nýtt í lífi HSGE

Nú er sko langt síðan maður bloggaði. það er reyndar svolítið leiðinlegt hvað allir eru hættir að blogga, nú uppfærir fólk bara status á facebook....hehehhe...

En það er nú kannski fínn tími til að fara að blogga núna aftur...því fjölskyldan er nú að ganga í gegnum rosa breytingar.

Við erum að flytja til Danmerkur núna 24.apríl. Það má segja að þetta hafi verið gert í alvöru núna, fremur en þegar við fórum 2004 og snerum heim eftir 2 mánuði, varla búin að taka búslóðina uppúr kössunum.
Hafsteinn fór út í lok janúar til að byrja í skólanum 1.febrúar. Hann hefur búið hjá Kalla og Moniku síðan þá og við hin höfum verið hérna á klakanum. Ég er nú alveg að verða búin með Bs í Rekstarverkfræði, en eftir prófin núna í apríl á ég aðeins 1 námskeið eftir. 

Ég er semsagt búin í prófum 21apríl og við höfum nú búið hjá Lilju í 6 vikur á meðan við vorum að bíða eftir íbúð úti og bíða þar til ég klári prófin. Það hefur bara verið rosa fínt, þvílíkur munur að vera ekki ein með öll húsverkin. Ég veit nú ekki hvernig verður að fara að búa aftur með Hafsteini eftir þetta....hehehe

EN, ekki má gleyma því að ég er ólétt að þriðja barninu okkar...hihihi...sem við ætlum að fæða í heiminn í danmörkinni. Ég er gengin 30 vikur og hefur Hafsteinn ekki séð mig síðan á 20 viku. Gvuð það verður sjokk fyrir greyið manninn að taka á móti fjallinu sem konan hans er orðin á þessum 10 vikum...hehehehehe

En við erum að flytja aftur til Kaupmannahafnar, erum komin með íbúð á Kagsá, 3 herb, 60fm íbúð..hehehe....eftir að hafa verið í 105 fm 4 herb íbúð í kópavoginum....úff svolítil breyting...en iss piss við látum það ekki á okkur fá...einhversstaðar verður bara að byrja. Þetta er litla útlandaævintýrið okkar, sem okkur hefur alltaf langað til að prófa að upplifa, og það þýðir að við sættum okkur við ýmislegt. Það getur nú ekki allt verið fullkomið...enda hvar væri gamanið í því. 
En Kalli og Monika eru þarna rétt hjá okkur, á sama kollegie, og Elísa og Korka eru nú þegar byrjaðar að "bonda". Djöf..það á eftir að vera svoooo gaman hjá okkur í sumar...þau voru að eignast litla kútinn sinn, hann Markús Leó sem er ca 2 og hálfs mánaða núna.

Og ekki má gleyma að minnast á nýja kútinn hennar Ásu minnar, hann Óðinn Örn, sem er líka 2 og hálfs mánaða. Það er rétt vika á milli þeirra....hehehe...
En nú þurfa Artúr og Elísa að skilja í smá tíma og eiga samband í gegnum Skype. Manni finnst þetta allt svolítið endanlegt, að vera að flytja út, frá Ásu minni, og eiga að venjast því að vera ekki með hana í næsta húsi. En tíminn þýtur áfram og líður hraðar og hraðar með hverju árinu. 

Jæja...nú ætla ég að kynna Gabríel fyrir bíómyndinni Grease, sem amma hans var að kaupa á Perlu markaðnum. ;) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 22:55:54 / svansie

11 Year´s of loooooove ;)

Í dag er 11.febrúar....og það er sko merkisdagur í okkar lífi....og þar sem við Haffi vorum svo ung þegar við kynntumst, getum við sagt...þetta er sko dagurinn sem við ÁKVÁÐUM að byrja saman....hihihihi

og nú eru liðin 11 ár, tvö börn og mjög erfið og yndisleg ár síðan....;):)

Við gerðum nú ekkert svakalegt í dag....ég var að læra til sjö..og Hafsteinn heima eftir vinnu með börnin....en fengum okkur nú öll gott að borða saman, smá videó og svo spiluðum við smá sequence.....very næææsss.....:)

Gabríel var sko ákveðin í gær að hann myndi sko deila þessum degi með mömmu sinni og pabba...og við ættum sko að gera eitthvað kóóóósí og gott..hihihihi...litla dekurrassgatið og nautnaseggurinn okkar...hehehehe:haha:

Svo kíktum við sko í minningakassann góða...og komumst að því að það er sko mikill munur á Gabba og Elísu litlu...því við 10mán aldur....er elísa 8,2kg og Gabríel Ómar 11.2Kg...hehehehe

þetta er nottlega hörku strákur sem við eigum...og alger prinsessa....hihihi:haha:

Nú verður haldið uppá afmælið þeirra næstu helgi....Elísa 1.Árs...og Gabríel 9.Ára...við ákváðum að hittast fyrir miðju..og halda uppá afmælið þeirra saman....

En ástin mín...takk fyrir öll árin...Ég elska þig mest yndislegi maðurinn minn

Ástarkveðjur............


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 12:22:29 / svansie

Tennur!!!!

já...tennur..skrítið nafn á færsluna...hehehe...en það snýst allt um tennur hjá okkur núna.

Elísa er komin með tvær tennur niðri...og er að fá tvær stórar framtennur í efrigóm....og í sama mund ákveður Gabríel að missa eina stóra tönn sjálfur.

Svo vorum við að sjá að Elísa er að fá 2 tennur til viðbótar sitthvoru megin við nýju efrigómstennurnar sínar....og viti menn....Gabríel missti aðra tönn í gær....við hliðina á hinni sem hann missti um daginn...hehehehehehe

ég vona nú að þau geri þetta ekki að vana sínum...því þá mun Gabríel enda með engar tennur þegar Elísa verður fulltennt...hehehehehhehee.....

Arthúr varð 1.Árs 1.febrúar seinastliðinn....orðinn svo stór þessi flotti strákur...var svo í skoðun...og drengurinn er orðinn rúm 12 kg....hahaha....seinast þegar Elísa fór þá var hún rúm 8kg.....hehehe...smá munur....:haha:

En jæja...það er föstudagur...og ég er að vinna alla helgina...bara fínt....nú verður sko bara lært og lært....gellan hefur ekki alveg verið að standa sig í lærdómnum....þannig nú verður sko tekið á því...próf á þriðjudaginn og sonna....eins gott að undirbúa sig vel...gildir einhvern heilan helling af lokaeinkunn held ég:S

en ég sit núna hérna niðrí skóla...og er að fara að læra....toottles;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 20:07:19 / svansie

FÍH...ég er komin inn

FÍH....FÉLAG ÍSLENSKA HLJÓMLISTARMANNA.....ég komst inn...í tónlistarskólann þeirra....alger snilld.....kennarinn minn heitir Björk, og er nýflutt heim aftur að utan....geðveikt fín og ég er bara komin á fullt núna að finna lög til að syngja í tímum og solleiis.ohhh...ég er svo glöð...þarf reyndar að redda skólagjöldunum...híhí...já já...ekkert mál...þetta reddast...erþaggi:haha:

Elísa stóð upp við stofuborðið áðan...í fyrsta skipti....á svona hörðum fleti...hún er alveg rosaleg....er ekki að fatta að maður getur meitt sig....haaaa...hvað er það...hahahahaha

jeminn...þetta er sko þvílíkt lúxuskvöld...klukkan er rétt orðin átta, og Elísa er sofnuð...með engu grenji eða neitt....alveg hljóð og nææææss.....og ég get hangið í tölvunni og chillað...omg...já...

nema...það er svo pirrandi...ég sest loksins niður eftir stúss dagsins....og viti menn...ég er svo þreytt að ég fæ bara dúndrandi hausverk og þarf bara að leggjast útaf og loka augunum....hvusslass gömul kelling er mar orðin...hihihi;)

jæja..gaman að heyra í ykkur...Gabríel dúlla var að opna bloggsíðu...hhehehe...svo mikið kjánaprik....www.blog.central.is/starwarsgabbi

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 11:21:35 / svansie

Janúar 2008

Þá er skólinn byrjaður og kominn á fullt. ég er samt enn að reyna að koma mér í lærdómsgírinn....er eitthvað andlaus suma daga......en þetta kemur allt.....

Elísa fór í 10mánaða skoðun, og er orðin 8.2kg samkv.því......alltaf að stækka skvísan.....segir mamma á fullu....vill bara skríða uppá sófann.....er sko farin að standa upp í rúminu og sófanum og svona mjúkum stöðum....

Gabríel er eitthvað latur í skólanum núna...nennir ekki að mæta....en var samt smá lasinn á þriðjudaginn....fékk þvílíka magakrampa og átti voða bágt greyið.....en það var búið næsta dag....

En rosalega eru margir veikir....ég horfi á msn listann minn og það er undantekningalaust einhver sem skrifar við nafnið sitt "veikur" eða gubbupest....eða eitthvað.....

Hafsteinn er byrjaður að vinna aftur eftir fæðingarorlofið sitt.......þó það hafi nú ekkert verið að gera hjá honum vegna alls snjósins...

Sem by the way er brjálaður núna....þeas snjórinn og veðrið.....ég actually lét mig hafa það að vera meganörd í dag og fór í skólann í GÖNGUSKÓNUM MÍNUM........hahahhahahha....já...það var starað....og ég skil það vel....ég hefði fokking skellihlegið....hvusslass hálfviti mætir í gönguskóm í skólann....bara tilbúin að ganga á fjall...hahahahahhahaha.....en mínir skór eru bara ekki gerðir fyrir þetta veður....verð bara að kaupa mér nýja skó....helst flott fóðruð stígvél.....já...það væri skemmtilegt.....:)

en við haffi ætlum að reyna að spara eitthvað mega mikið núna næstu mánuði...þannig ekkert að kaupa sér skó eða drasl......:(....meira böggið....en sjáum hve vel það tekst, eða hvort það takist:haha::haha:

jæja...ég get varla skrifað....mér er svo kalt....ég ligg uppí rúmi, í fötunum og undir sæng....og er samt að krókna úr kulda......

eins gott að það verði hlýrra í Danmörku þegar ég fer þangað eftir 5 vikur..jeeee:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 01:28:34 / svansie

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Jólin eru komin og eru...ég er orðin 26.ára...(átti afmæli á aðfangadag).....Elísa er búin að vera veik síðan á aðfangadag....og er farin að vaka allar nætur..og Gabríel líka. þvílíkt ástand á þessum börnum mínum....ekkert uppeldi:S

Elísa er búin að smita Haffa..hann orðinn lasinn líka...og er ekki glaður með það. Nú eru að koma áramót....og við vitum ekkert hvað við eigum að gera. Gæti verið soldið erfiðara að finna pössun núna....og við vitum ekkert hvernig veikindin munu vera.

Elísa er farin að klappa....og skríða...eða..hún kemur sér áfram á rassinum. :haha: alger dúlla!!!!!

Ég fékk æðislegar jólagjafir frá öllum....og ég vil endilega þakka kærlega fyrir mig og okkur öll í fjölskyldunni.********knúúúúús og kossar*****:)

Gleðilegt nýtt ár....2008...enn eitt nýtt upphaf...;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 15:44:29 / svansie

Eru jólin að koma???? humm....

það er ein vika í jólin....ég er ekki búin að setja neitt jólaskraut upp...ekki einusinni jólaljósin...ER EKKI Í LAGI MEÐ MIG?...hehehee....við vorum að mála herb.hjá Gabríel...það tók sinn tíma....en jeminn....hlutirnir gerast bara svoooo hægt....er að brjálast...ég vil bara taka til og þrífa og gera allt á einum degi....nenni ekki þessu endalausa veseni...nú er búið að vera allt á hvolfi í heila viku eða meira....er að BRJÁLAST.....jesús minn...af hverju á maður svona mikið dót...mig langar bara að taka allt draslið og HENDA ÞESSU ÖLLU Í RUSLIÐ!!!!!!

svo er ég að taka ýmis leikföng frá Gabríel og "láta það hverfa"...hehehe...og ætla bara að gríta þessu í ruslið.....en nei...þá kemur samviskan inn....:"kannski einhver önnur börn verða glöð að fá þetta dót"......frigg frigg frigg.....!!!!!!!!!!!!:^) og þá þarf ég að fara að sortera það og setja í sér poka þar sem líklegra er að Gabríel sjái draslið sem ég er að henda...hehehe:haha:

og eruði að grínast....af hverju fellur RYK???????....díses...ryk útúm allt....nottlega ekki búið að vera svo dugleg að dusta af og sonna meðan skólinn og allt var í gangi...hehehe....já..ég fæ það sko í hausinn núna...mér finnst bara allt heimilið mitt viðbjóðslegt og ógeðslegt og alger píningur...:$

jæja..búin að pústa....:)

Ég fór í afmæli til ömmu um helgina....Gillý amma orðin sjötug gella....hihihi....en pabbi snillingur samdi texta við lagið "working nine to five" með Dolly Parton....og við sungum saman lagið í stofunni hjá ömmu..bwahahahhaha....það var svo fyndið og skemmtilegt....:haha:

gleðileg jól elskurnar mínar8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 13:25:07 / svansie

ÉG ER BÚIN Í PRÓFUM!!!! JIIIIHÍÍÍÍ

Já...ég er sko búin. fimm próf....og pottþétt að fara að ná þeim öllum....djöss snilld....ég fór á próflokadjamm í gær....já á mánudegi...og var komin heim blindfull á miðnætti...hehehehe....

ég sit hérna núna, EIN..og er að leika mér í tölvunni....soldið spennufall í gangi...búin að grenja soldið...yfir stupid hlutum...úff langt síðan mar hefur gert svoleiðis..hehehehe.....og ég er bara að hlusta á tónlist í botni og syngja hástöfum með...já mjög mjög mjög langt síðan ég hef gert það....já ég er sko mjög róleg og góð núna....:)

svo horfi ég á bækurnar...omg...ég þarf að selja þær og ganga frá þeim....já..LÉTTIR hihihi

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 17:54:09 / svansie

er kalt eða????

já það er sko kalt. seinasta prófið mitt...markaðsfræðin er á morgun...helvítis djöfulsins leiðinda fag....og ég sit hérna niðrí moggahúsi...sem mætti halda að væri frystikista, þar sem hitastigið er eflaust eitthvað svipað og í frystikistu. djísús....bíddu..ég ætla að tékka...neibbb...þessi mælir er eitthvað gallaður því hann sýnir 22 gráður...puttarnir og nefið er að detta af mér...

og svo spyr maður sig líka...hvað er fólk að éta í próflestri....einhverjum finnst sniðugt að éta "BEEF JURKY" (vona að þetta sé rétt skrifað...virkar samt eitthvað skrítið;)......djöss viðbjóður...:S

Elísa er byrjuð að tala...já...klár stelpa...heilar samræður sem fara okkar á milli...hehehehehhe....

ja..það allavega mætti halda það stundum...en orðin eru þó fá....en allavega mamma/amma, babba/babbabbabb, bæ bæ...mest krúttlegt....og svo atta...sem er víst datt....hehehhehe

svo vinkar hún líka með bæinu....já..to die for...svo yndisleg

Gabríel er að missa sig úr spenningi....hvað sagði hann í morgun???...humm...15 dagar til jóla eða eitthvað...og 1 dagur í próflok hjá mömmu.....já hann veit nebblega að jólastússið hefst þá hjá okkur á okkar heimili....oghann er svo spenntur. Búinn að vera svo stilltur og góður og reynir eftir mesta megni að týna ekki nýju úlpunni sem hann var að fá....já..við óskum honum góðs gengis við það..heheheh:haha:

jæja...best að halda áfram að fylla hausinn á mér af upplýsingum sem munu vera notaðar á morgun, OG AÐEINS Á MORGUN, og verður svo eytt.....hehehehehhe:haha::haha:

bráðlega jólakveðjur, Svanlaug


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 19:00:53 / svansie

próf próf og próflestur

 já best að blogga eitthvað hérna....manni er bara strítt...hehehe

ég er byrjuð í prófunum, 2 búin og 3 eftir....djöss snilld.....mér er búið að ganga mjög vel og er ekkert stressuð lengur. ég er að fara í stærðfræði próf á mánudaginn...og miðað við slugsið í mér...á ég ábyggilega eftir að falla.....hehehe...nei nei..djók...kann þetta svo vel..:)

Við fjölskyldan fórum í bíltúr í dag....og við förum stundum í svona leik í bílnum, þannig að við skiptumst á að finna nöfn útúr bílnúmerum.....ég veit ekki hvort maður eigi að segja frá þessu....en talandi um hvað við erum nú undarleg fjölskylda.....þá fundum við þvílíkt flott nöfn við KR og LL......hahaha....Kúkur Rassson og Ljótur Langljótsson....bwahahahahahahha:haha:ég gæti sturlast....nú sit ég hérna...að skrifa þetta bull og grenja úr hlátri....hahahaha....ohhh mar er svo undarlega fyndinn stundum..híhíhí

Það er ótrúlega hentugt (eða þannig) að þegar maður er að byrja í prófum, þá byrjar vesen. Elísa er semsagt búin að vera með eitthvað magavesen, og ekkert verið að sofa á nóttunni, né á daginn. Soldið pirruð greyið, og mamma og pabbi líka. En við ákváðum að hætta að gefa henni stoðmjólk og skyr. og hún hefur skánað til muna. aftur farin að sofa á nóttunni....úff..kominn tími til segi ég nú bara.....en hún á samt enn erfitt með að kúka...allt svo voða hart....;):S

þannig að ....hehe...pointið með þessari sögu.. að ég er byrjuð að gefa henni rúsínur....og þvílíkt nammi namm...hún er alveg sjúk í þær....:D og rosa dugleg að tyggja rúsínurnar með samblöndu af góm og tveimur tönnum...hihihihihi algert rassgat....

en síminn minn er í pásu núna....því það lekur úr honum....uhumm...slef...hahahha...

Dagrún....til hamingju með að vera orðin stóra frænka.....get ekki beðið eftir að sjá myndir knúsídúllan mín.;)

Jæja...það er soldið erfitt að pikka eitthvað hérna inn...því elísa er hérna við hliðina á mér...og vill líka gera....tölvan er svo áhugaverð og sæðisleg....bwahahahhaha...jhihihi...jæja...blæ:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 03:33:53 / svansie

Elísa er að fá fyrstu tönnina sína :)

já þá er þetta að gerast. Elísa er loksins að fá fyrstu tönnina sína. Ég veit reyndar ekki hvort það sé tilviljun, en hún er búin að vera núna lasin í 3 daga, með í kringum 39 stiga hita. og stefnir í fjórða daginn án bata. En annaðhvort var hún að næla sér í mega pest, eða þá að tanntakan er að hafa svona mikil áhrif á hana. Jiminn, ég hef ekki náð góðri nótt núna í 3 nætur. ég er að tapa mér.....klukkan er núna þrjú, UM NÓTT, og ég er búin að reyna að liggja í 1 og hálfan tíma að reyna að fá hana til að sofna, og svo dotta ég á milli og eitthvað vesen....nennti því ekki lengur því barnið er bara EKKERT AÐ SOFNA.....þannig nú erum við komnar fram að leika. :) Kannski hún þreytist eitthvað á því. ÉG er allavega rosalega þreytt....ohh svo erfitt að vera til stundum.

Talandi um erfitt....gamall vinur minn dó í vikunni. Hann hét Gunnar og var maður frænku minnar. Hann fékk hjartaáfall og dó samstundis. Ég votta þér Sigríði, Elvu Rut, Birni Antoni og Stefáni, innilegar samúðarkveðjur. Krakkar...pabbi ykkar var frábær:)

 Nú eru aðeins 3 vikur í próf....lokapróf.....how about that!!!........ótrúlegt hvað tíminn líður hratt....fyrsta önnin búin....ja eða svotil.....ég er reyndar að BRJÁLAST úr stressi og kvíða...shjittur segi ég bara.....

Ég ætla að búa til jólagjafalista fjölskyldunnar og hafa það hérna á vefnum. Ég er alltaf að muna eftir einhverju sem mig langar í, ætla að kaupa mér, langar að kaupa mér, eitthvað sem fjölskylduna vantar.....þið vitið...svona ýmislegt sniðugt.

En nottlega alltaf búin að gleyma því jafnóðum:haha::haha:þannig nú ætla ég að reyna að búa til smá yfirlit og reyna líka að ákveða, hvað mig langar í mest:haha:

bráðum koma blessuð jólin...Svanlaugu hlakkar mikið til...lalala lala lala la:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 18:32:38 / svansie

Óstjórnsamur líkami

ég er í stökustu vandræðum. Ég hef ítrekað reynt að hætta að borða nammi og kökur og hitt og þetta allskyns gúmmulaði......en líkami minn bara neitar þessari vitleysu! Ég er varla kominn inn fyrir dyrnar, eða útúr dyrunum þegar ég að hugsa hvað ég skal nú kaupa í sjoppunni eða hvað ég eigi nú til í skápunum. Eða þá, hvað ég ætli að kaupa í sjoppunni, til að eiga í skápunum. hahahhahahah......ég er að bilast.....ég er svooooo átsjúk.....það er bara svo ógeðslega gott að borða.....ég bara ræð engan vegin við mig.

Ég kom heim eftir skóla í dag. Bara ósköp róleg, en þó að hugsa um heilsunammið sem ég vissi að ég ætti uppá borði. Ég meina...þetta er svo lítið....nokkrir molar....svo kem ég heim....borða þessa nokkra mola....ohhh..mig langar svo í eitthvað meira......hummm....opna skápinn og rek augun í gulrótarköku sem ég keypti á föstudaginn....og viti menn.....áður en ég veit af eða get hugsað mig einu sinni um, þá er hálf gulrótarkaka búin....gleypt í sig eins og einhver geðsjúklingur.....hahahahha:haha::haha:

já.....þetta er sko vandamál.....ég er nottlega búin að vera svo dugleg í skólanum, ALLTAF, Á HVERJUM DEGI.....þannig mar á sko að fá verðlaun......ALLTAF, OFT...FEITT MIKIL VERÐLAUN....eða þannig!!!!!!!!!!!!!!

arrrrgggg.......

 Elísa er farin að vinka....rosa dugleg að vinka og segja væ væ...vævæ...hahahha....snillingur....svo er hún líka farið að geta setið ein á gólfinu...án stuðningspúða....

Svo kom Jóna Björg frænka hennar um daginn og lánaði henni svo rosalega fína hoppurólu og göngugrind. já..mar er orðinn svo stór:haha:

Ég fór í foreldraviðtal í seinustu viku....og viti menn....Gabríel fékk sko góða dóma.....er í hóp kláru krakkanna.....og gengur bara rosa vel með allt sem hann gerir.....ekkert mál að læra....fær þetta örugglega frá foreldrum sínum....klári strákurinn...hhhihihihihi....en þó masar hann svolítið mikið stundum....lítil kjaftakjelling...hehehehe:haha:

Jæja...Elísa er ekkert sátt núna...later dude


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 15:00:50 / svansie

LærdómsKRÍSA

guð...ég er í lærdómskrísu..nenni ekki að læra....og samviskan segir mér nottlega að sitja hérna áfram og pína mig við þetta...því Elísa er hjá dagmömmunni til fimm og ég Á AÐ NOTA TÍMANN VEL....

ohhhhhhh....hvað í andsk.....ég er búin að vera í stærðfræðinni....og hefur gengur mjög vel...nema núna er ég í fokking leiðinlegum kafla.....og skil ekki eitthvað og þá sturlast ég....díses...það er nú ekki hægt að kunna allt...ég er nú í skóla til þess að læra....en NEI...ÉG ÞARF AÐ KUNNA FYRIRFRAM....hvað á þetta að þýða Svanlaug???

já..held ég snúi mér bara að einhverju öðru...en mig langar sko bara að horfa desperate housewives sem ég downloadaði í gær....hehehehehehhe

já..þetta getur verið tricky mál....

Hafsteinn er á Reyðarfirði að vinna...og verður þar í heila viku....umm næss.....þá er ég bara ein heima...og er að fíla það í botn.....ró og næði....

samt sakna ég hans  nú....sérstaklega þegar ég fer að sofa á kvöldin....að fara ein uppí rúm...:( ekki alveg eins kósí....hihihi

mér finnst nú voða lítið sossum að frétta....elísa er enn ekki farin að drekka hjá dagmömmunni sinni....og guð hún var svo mikið krútt í morgun.....hún fór út í snjógalla...hahahahahahah...ég tók nottlega mynd....mesta krúttið

Gabríel er enn alltaf í pissustuði á nóttunni.....guði sé lof fyrir pissulök....:) en ég held nottlega í vonina að hann fari að hætta þessu svo ég geti nú hætt að þvo rúmföt á HVERJUM DEGI....soldið þreytandi....

 og ég þarf að læra enn á fullu....en nenni því ekki þessa dagana....langar bara á kaffihús og í kringluna og horfa á líf annarra í TV......já ..svo fínt...

EN..góðar fréttir.....Kalli og Monika koma heim á afmælinu hennar Korku....jei...éger svo glöð....sakna þeirra svo....Hlakka til að sjá ykkur knúslur....;)

hehehe...jæja...væmin ég ....farin að læra


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan